Leiðarvísir fyrir kynningarherferðina

Blogg

Hentar:

Öllum gerðum samtaka.

Hvað er þetta?

Blogg er eins konar vefsíða eða hluti af vefsíðu. Blogg er venjulega á vegum einstaklings þar sem boðið er upp á færslur með athugasemdum, fréttum, viðburðalýsingum o.s.frv. Staðbundin og alþjóðleg blogg geta verið gríðarlega áhrifamikil og auðug af áhugaverðum upplýsingum. Margir bloggarar eru sannkallaðar stjörnur á netinu. Álit þeirra skiptir máli og rödd þeirra heyrist. Því eru miklar líkur á því að upplýsingar, sem vinsæll bloggari birtir, öðlist mikla útbreiðslu meðal lesendahóps hans.

Ávinningur

  • Þú getur nota það sem „óformlegt andlit“ samtakanna þinna og átt í samskiptum við gesti á blogginu.
  • Efni bloggsins getur orðið að kraftmiklu verkfæri fyrir herferðina þína með litlum eða engum tilkostnaði.

Takmarkanir

  • Blogg er í raun viðbótarvefsíða sem þú heldur utan um.
  • Það getur verið krefjandi fyrir þig að stjórna ýmsum vefvettvöngum, sérstaklega þar sem blogg þarf sérstaka athygli og felur í sér að nota „blaðamennsku“ tungumál.

Hvernig virka blogg?

  • Flest blogg eru gagnvirk og leyfa lesendum að senda skilaboð til að bregðast við því sem þeir hafa séð.
  • Hægt er að hýsa blogg á eigin heimasíðu fyrirtækisins eða á bloggsíðum (eins og Wordpress).
  • Flest blogg eru fyrst og fremst textabundin, þó að sumir einbeiti sér að list, ljósmyndum, myndböndum (myndbandsblogg) tónlist og hljóði (hlaðvörp).

Hvernig á að fá sem mest út úr blogginu þínu

  • Áður en byrjað er á tæknilegu hlutunum verður þú að skilgreina skýrt tilgang bloggsins sem þú ert að fara að búa til. Svaraðu spurningunum:
    • Verður það upplýsandi?
    • Skemmtilegt?
    • Hversu oft viltu uppfæra það?
    • Hver er markhópurinn?
  • Þegar þú hefur svarað þessum spurningum, vertu viss um að úthluta einhverjum sem ætlar að sjá um að leiða bloggið og uppfæra það reglulega. Gott blogg er tímafrekt; þess vegna er nauðsynlegt að vita hver sér um bloggið.

Hagnýt sjónarmið

Finndu blogghýsingarfyrirtæki.