Hvers vegna er átakið mikilvægt?
Heilbrigðir vinnustaðir gagnast öllum – allt frá starfsfólki og fyrirtækjum til viðskiptavina og samfélagsins í heild.
Ef starfsfólk finnur fyrir stuðningi og upplifir að framlag þess sé metið að verðleikur er það líklegra til að takast betur á við kröfur í starfi og vera afkastameira. Samfélagið nýtur þess síðan í formi færri veikindaforfalla, lægri heilbrigðiskostnaðar og sterkari samfélaga.
Niðurstöður OSH Pulse Survey 2025 sýna hins vegar að áhyggjur eru af áhrifum vinnunnar á heilsu starfsfólks. Margir segja að starfið hafi neikvæð áhrif á heilsu þeirra:
- 37% starfsfólks upplifir almenna þreytu.
- 29% upplifir streitu eða kvíða.
Því er mikilvægt að greina, fyrirbyggja og stýra sálfélagslegum áhættuþáttum á vinnustað til að efla geðheilsu starfsfólks.