Fyrirtækjanet Evrópu

Deila þessu á:

Fyrirtækjanet Evrópu (EEN) er kerfi sem er stjórnað af framkvæmdastjórninni og er lykiltól í áætlun ESB um að örva vöxt og fjölga störfum. Með því að nýta samvinnu 600 ráðgjafafyrirtækja frá 50 löndum getur EEN aðstoðað smærri fyrirtæki við að notfæra sér einstök viðskiptatækifæri í innri markaði ESB.

Frá 2009 hefur EEN starfað með EU-OSHA að því að auka vitund um vinnuvernd meðal ör-, smá- og meðalstórra fyrirtækja. Í því skyni tilnefnir EEN vinnuverndarsendiherra í hverju landi fyrir sig.

Herferðin Vinnuvernd er allra hagur er mikilvægt samstarfssvið milli stofnunarinnar og EEN auk þess sem vinnuverndarsendiherrar taka virkan þátt í kynningu hennar.

BA
FR
GR
HR
HU
IE
LT
LU
LV
ME
MK
MT
NO
PL
PT
RS
SE
SI
SK
TR