13/10/2026
Upphaf herferðarinnar Vinnuvernd er allra hagur: hér hefst vinna að bættri geðheilsu starfsfólks í ESB
© Prostock-studio - stock.adobe.com
Nær helmingur (45 %) starfsfólks í ESB býr við áhættuþætti sem ógna geðheilsu þess á vinnustað. Aðgerða er þörf. EU-OSHA hleypir í dag í Brussel af stað herferð sinni um allt ESB, Herferð um heilbrigða vinnustaði 2026-2028: Stuðlum saman að vellíðan í vinnu, til að hjálpa atvinnurekendum að fyrirbyggja, meta og stjórna sálfélagslegum áhættuþáttum á vinnustöðum.
Í tilefni af upphafi herferðarinnar munu virtir fyrirlesarar, þar á meðal Roxana Mînzatu, framkvæmdavaraforseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins með ábyrgð á félagslegum réttindum og færni, gæðastörfum og viðbúnaði, og William Cockburn, framkvæmdastjóri EU-OSHA, ræða evrópsk áherslumál varðandi geðheilsu á vinnustöðum.
Til að fá frekari upplýsingar um upphaf herferðarinnar og fimm megináherslur hennar:
- lestu fréttatilkynninguna;
- heimsæktu fjöltyngda vefsíðuna okkar; og
- fylgdu #EUhealthyworkplaces á LinkedIn, Facebook og Bluesky