Tilfellarannsóknir


Snjallarmband sem greinir gögn um heilsu og öryggi starfsfólks í rauntíma: stafrænt snjallkerfi til að bæta öryggi og heilsu starfsfólks

Í þessari tilviksrannsókn er farið yfir klæðanlega snjalltækni (e. wearables) sem safnar og metur gögn um hreyfingar starfsfólks og nærumhverfi þess. Markmið hennar er að draga úr áhættu í iðnaðarumhverfi og draga úr bótakröfum starfsmanna. Tækið, sem fer á handlegginn, safnar ekki aðeins upplýsingum í gegnum skynjara heldur gerir starfsmönnum einnig kleift að taka upp og senda talboð með athugasemdum fyrir tilvik eins og þar sem litlu mátti muna og þau sem brugðist var við í tæka tíð. Tæknin hefur í för með sér áskoranir, þ.m.t. sem varðar gagnaöryggi og áhyggjur starfsfólks varðandi eftirlit sem nauðsynlegt er að taka fyrir — en að endingu getur hún hjálpað fagaðilum í öryggismálum við að taka upplýstar ákvarðanir sem stuðla að öryggi á vinnustað.

Þetta er dæmi um eitt af þeim stafrænu snjallkerfum sem hönnuð eru til að stuðla að aukinni vinnuvernd í starfsgreinum sem tengjast flutningum, framleiðslu og löndun. Þessi tilviksrannsókn er hluti af vinnuverndaryfirlitinu (2020-2023) þar sem rýnt er í áskoranir og tækifæri sem þess konar tækninýjungar hafa upp á að bjóða.

Download pdf icon in: